Félagsþjónusta fatlaðra til sveitarfélaga
Eftirfarandi tölvubréf var sent til allra sveitarfélaga á Íslandi 26. janúar sl.:
Ágæta sveitarstjórn.
Þann 13. mars 2009 undirrituðu ríkisstjórn Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga viljayfirlýsingu um tilfærslu félagsþjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga árið 2011.
Landssamtökin Þroskahjálp eru hagsmunasamtök flestra þeirra sem njóta þjónustu skv. lögum um málefni fatlaðra.
Nú þegar aðeins 11 mánuðir eru til stefnu óska samtökin eftir upplýsingum um eftirfarandi atriði:
1. Hefur þitt sveitarfélag hafið undirbúning að yfirtöku þeirra verkefna sem ráðgert er að sveitarfélagið sinni frá og með árinu 2011 ?
2. Mun sveitarfélag þitt vera í samvinnu við önnur sveitarfélög um rekstur þjónustunnar?
3. Ef svar við spurningu 2 er já, hefur þjónustusvæðið sem þitt sveitarfélag er aðili að verið skilgreint ?
4. Hefur verið boðað til samstarfs við hagsmunaaðila á þjónustusvæði þíns sveitarfélags?
Landssamtökin Þroskahjálp lýsa yfir vilja sínum til samstarfs við sveitarfélög landsins um framkvæmd yfirfærslunnar með hagsmuni notenda þjónustunnar að leiðarljósi. Samtökin eru fús til samráðs um bæði framkvæmdalega þætti verkefnisins sem og þá hugmyndafræði sem leggja skal til grundvallar í þjónustu við fatlað fólk.
Virðingarfyllst,
f.h. Landssamtakanna Þroskahjálpar,
Gerður A. Árnadóttir formaður
Friðrik Sigurðsson framkvæmdastjóri
Öll svör sem berast verða birt með sama hætti og er þeim raðað niður eftir landshlutum.
Þegar fleiri svör berast munu þau vera birt með sama hætti
Svæðin eru:
vesturland,
vestfirðir,
norðurland, austurland,
suðurland,
suðurnes og
höfuðborgarsvæðið